Enn fleiri gjafir!

Alþýðubandalag Vestmannaeyja færði okkur (ásamt fleiri félögum í Vestmannaeyjum) ákaflega höfðinglega gjöf á sumardaginn fyrsta.  Við erum því komin með gott startfé og ætlum auk þess loksins að fara að innheimta félagsgjöldin sem ákveðin voru í október síðastliðnum.

Við erum með nokkrar góðar hugmyndir sem við hrindum vonandi fljótlega í framkvæmd, hugmyndir um fræðslu og athafnasemi sem vonandi á eftir að falla í góðan jarðveg.

Við erum a.m.k. afskaplega glöð og þakklát fyrir hvað bæjarbúar taka okkur vel og horfum björtum augum til framtíðar.

 

Svo ber að geta þess í framhjáhlaupi að auðvitað er Einhugur kominn á facebook.  Eltu okkur þangað og gakktu í aðdáendaklúbbinn :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband